Gróðursetning

Á föstudag stormaði fríður hópur starfsmanna út á lóð og setti niður 16 reynitré niður við vesturhluta Odda, aðalbyggingar skólans. Trjánum var verið að bjarga, en þau stóðu áður þar sem nýtt verknámshús mun rísa. Kennararnir Örn Óskarsson og Ólafur Einarsson höfðu umsjá með verkinu. Á myndunum má sjá hópinn að störfum. Myndirnar tók Örn Óskarsson.