Góður námsárangur

Esther Hallsdóttir er dúx FSu. Hún brautskráðist í dag af náttúrufræðibraut með meðaleinkunnina 9,52. Hún hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í raungreinum. Esther hlut að auki viðurkenningu frá Hollvarðasamtökum FSu ásamt þeim Ólöfu Björk Sigurðardóttur og Sigrúnu Jónsdóttur. Ólöf  Björk hlaut að auki viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í þýsku, dönsku, spænsku og íslensku og góðan heildarárangur í tungumálum. Sigrún hlaut einnig viðurkenningar fyrir frábæran árangur í ensku, eljusemi og dugnað í  fimleikaakademíu og frábæran árangur í stærðfræði og eðlisfræði.

Alls útskrifuðust 108 nemendur í dag, þar af 55 stúdentar.

Verðlaundahafar vor 2014 með skólameistaraÁ myndinni eru frá vinstri: Olga Lísa Garðarsdóttir skólameistari, Esther Hallsdóttir, dúx, FSu, Sigrún Jónsdóttir og Ólöf Björk Sigurðardóttir.