Fyrstu nýsveinar FSu í pípulögnum
Þann 25. mars luku nemendur FSu sveinsprófi í pípulögnum í fyrsta sinn. Boðið var upp á nám á pípulagnabraut í kvöldskóla vorið 2024 og fyrsti hópurinn útskrifaðist síðustu jól. Sex þeirra luku sveinsprófi hjá Iðunni fræðslusetri.
Guðmundur Bjarni Brynjólfsson fékk viðurkenningu fyrir bestan árangur á sveinsprófi í pípulögnum en um 30 luku sveinsprófi í pípulögnum að þessu sinni. Við erum gríðarlega stolt af hópnum og árangri Guðmundar Bjarna. Þetta er vitnisburður um gæði námsins í FSu og gefur okkur byr í seglin.
Á myndunum má sjá þá sex nemendur FSu sem luku sveinsprófi og Guðmund Bjarna Brynjólfsson ásamt Ívari Grétarssyni meistara sínum.
Skólinn tekur nýjan hóp inn í pípulagnir haustið 2026. Sjá nánar hér.
Iðan fræðslusetur sér um sveinspróf í ýmsum greinum, hér má sjá frétt Iðunnar um nýafstaðin sveinspróf.








