Góð gjöf

Skólanum barst góð gjöf í síðustu viku. Fyrirtækið Ískraft gaf skólanum iðntölvu og hraðabreyti sem nýtist við kennslu í grunndeild rafiðna. Gjöfin er afar kærkomin og á eftir að koma sér mjög vel.
Á myndinni má sjá nemendur í grunndeild ásamt Þór Stefánssyni og Grími Lúðvíkssyni kennurum rafiðna, Guðmundi Smára Jónssyni frá Ískraft og Þórarinn aðstoðarskólameistari sem tók við gjöfinni.