Góð frammistaða í Gettu betur

Gettu betur lið FSu tapaði naumlega í átta liða úrslitum gegn liði Verslunarskólans á föstudag, en leikar fóru 20-18. Keppnin fór fram í beinni útsendingu og stóðu okkar menn sig afar vel. Fjöldi nemenda fylkti liði í sjónvarpssal og studdi vel við bakið á liðinu. Hljómsveitin RetRoBot sá um skemmtiatriði fyrir hönd FSu og tókst það mjög vel. Á myndunum má sjá lið FSu í sjónvarpssal sem og stuðninglið FSu. gettubeturruv