Gegn einelti

Nú á haustönn verður unnið við að innleiða áætlun gegn einelti og Olweusar-áætlun í FSu. Agnes Ósk Snorradóttir og Þórunn Jóna Hauksdóttir munu stýra þeirri vinnu í samráði við Þorlák Helga Helgason, í tengslum við forvarnateymi skólans og nemendaráð.  Þau þrjú kynntu það sem þegar hefur verið unnið og hvað framundan er í verkefninu á fyrsta kennarafundi annarinnar.