Fundir og fjör

Með nýrri eyktaskipan hafa ýmsir möguleikar opnast til breytinga í skólastarfinu. Nú hafa nemendur til dæmis fleiri tækifæri til félagsstarfs á skólatíma, en áður gáfust aðeins frímínútur og matartímar til slíkra verkefna. Meðan kennarar þinguðu um sjálfsmat síðasta miðvikudag blés skemmtinefnd til dæmis til limbókeppni og fleiri skemmtilegheita. Vonandi verða nemendur duglegir að nýta þessi tækifæri til að efla félagslífið.