FSu vann FVA í Gettu betur
20.03.2026
FSu keppti á móti FVA í átta liða úrslitum í Gettu betur í gærkvöldi. Viðureignin var sýnd beint á RÚV og vann FSu sannfærandi sigur, 27-14.
Lið FSu er skipað Hjálmari Vilhelm Rúnarssyni, Hrafnhildi Svövu Hemmert Sigurðardóttur og Valgeir Gesti Eysteinssyni. Þjálfari liðsins er íslenskukennarinn Stefán Hannesson. Undanúrslitin verða 26. mars en þá mætir skólinn MR. Við erum gríðarlega stolt af góðum árangri liðsins og mætum einbeitt til leiks í undanúrslitin!







