FSu mætir MA í Morfís

Ræðulið FSu mætir liði Menntaskólans á Akureyri í átta liða úrslitum Morfís næstkomandi mánudag, 24. febrúar. Keppnin fer að þessu sinni fram á heimavelli FSu og hefst kl.18 í sal skólans.

Lið FSu skipa þær: Esther Hallsdóttir, Jóna Guðbjörg Guðmundsdóttir, Ragnheiður Inga Sigurgeirsdóttir og Anna Guðrún Þórðardóttir.
Þjálfari: Jóhannes Bjarki Urbanic.
Allir velkomnir.