FSu komið í 8-liða úrslit

Gettu betur lið Fsu tryggði sér sæti í 8 liða úrslitum í gær með sigri á liði Framhaldsskólans á Laugum. FSu sigraði með 17 stigum gegn 15. Liðið er því komið áfram í 8 liða úrslit sem sýnd verða í RÚV. Lið FSu skipa þau Ísak Þór Björgvinsson, Jakob Burgel og Vilborg María Ísleifsdóttir. Liðsstjóri er Hannes Stefánsson.