Frumsýning - Tvíleikur - Perfect/Tjaldið

Leikfélag Nemendafélags Fjölbrautaskóla Suðurlands frumsýnir á sunndag, 17. mars,  Tvíleik. Sýningin samanstendur af tveimur leikverkum sem leikin eru fyrir og eftir hlé. Verkin heita Perfec t, eftir Hlín Agnarsdóttur og Tjaldið, eftir Hallgrím Helgason.

Verkið Perfect gerist á hæfileikakeppni í beinni útsendingu, en verkið Tjaldið gerist á útihátíð um miðja nótt.  Verkin eru skemmtilega ólík og koma inn á málefni sem alla varðar.leik3

Um 30 manns taka þátt í sýningunni, en sýningin er unnin sem hluti af leiklistaráfanga í FSu sem er undir stjórn Guðfinnu Gunnarsdóttur. Hljómsveitin Aragrúi sér um tónlist í sýningunni.

Æfingatímabilið hefur verið mjög skemmtilegt, hópurinn unnið frábærlega saman að þessu verkefni þar sem allir leggjast á eitt við allt það sem þarf að koma sýningu sem þessari á svið.

Leikfélagið mun svo taka þátt í leiklistarhátið sem haldin verður á Stokkseyri í apríl, en hátíðin er í umsjá Þjóðleiks, verkefnis á vegum Þjóðleikhússins.

leikFrumsýning - sunnudagur 17. mars
2. sýning - miðvikudagur 20. mars
3. sýning - fimmtudagur 21. mars
4. Sýning - föstudagur 22. mars
5. sýning - þriðjudagur 9. Apríl

Allar sýningar hefjast kl 20.00

Miðasala í símanúmer 771-4450 eða á fridaha95(hjá)gmail.com