Frumsýning tókst vel

Söngleikur NFSu, Grís Horror, var frumsýndur 19. mars sl. Frumsýningin vakti mikla lukku og hefur söngleikurinn hlotið gott umtal. Því miður féllu laugardags- og sunnudagssýningarnar niður vegna óviðráðanlegra ástæðna en sýningu var bætt við í staðinn sunnudaginn 28. mars. Nýir sýningartímar eru þá svona:

2. sýning fimmtudag 25. mars kl.20:00
3. sýning föstudag 26. mars kl.20:00
4. sýning laugardag 27. mars kl.24:00 - POWER/miðnætursýning
5. sýning sunnudag 28. mars kl.22:00

Örfáir miðar eru eftir á fimmtudags- og föstudagssýninguna og er fólk hvatt til að drífa sig að panta miða. Einhverjar sýningar verða svo eftir páska og verða auglýstar síðar.