Framhaldsskóli barnanna

Innritun stendur yfir í framhaldsskóla barnanna, námskeið fyrir börn á aldrinum 10-11 ára. Námskeiðið stendur yfir dagana 10.-14. júní, en þar gefst börnum kostur á kennslu í þeim iðngreinum sem kenndar eru við skólann. Kennt verður í tré-, málm- og rafiðngreinum sem og matreiðslu og myndmennt.

Námskeiðið kostar 7.500 krónur. Frekari upplýsingar og skráning á skrifstofu skólans.