Frábært vísnakvöld

Hið árvissa bolludagsvísnakvöld kórs FSu var haldið mánudagskvöldið 15. febrúar og gerði stormandi lukku. Auk kórsins, sem söng nokkur lög, tróðu einstakir kórmeðlimir upp. Einnig sýndi Leikfélag Selfoss brot úr sýningu sinni Birtingi eftir Voltaire. Kvöldið þótti einstaklega vel heppnað og sannaði enn og aftur að FSu býr yfir frábæru listafólki.