FRÁBÆR GÓÐGERÐAVIKA

Góðgerðavika NFSu er orðin að árlegum viðburði í skólastarfi FSu. Þá safna nemendur fjármunum til styrktar völdu þjóðþrifamáli í gegnum söfnunarreikninginn 0189-26-006604 með kennitölunni 660490-2569. Að þessu sinni var athyglinni beint að BÖRNUM með krabbamein. Óhætt er að segja að þetta frumkvæði nemenda lífgi upp á hefðbundið skólastarf. Vikan hófst með kynningu á sal skólans frá fulltrúum samtakanna Barna með krabbamein og svo var haldið af stað með áheitum og áskorunum á nemendur og kennara og starfsmenn skólans til að safna peningum til styrktar viðfangsefninu. Einnig voru haldnar uppákomur og skemmtanir við ýmis tækifæri.

Allir mega koma með áskoranir í góðgerðaviku og í hópi starfsmanna fór skólameistari um á leikfangahesti, aðstoðarskólastjóri varð að býflugu, Helgurnar á skrifstofunni klipptu hárið sitt og settu í það vöfflur, eldhússtarfsfólk mætti í bleiku, sögukennari í sumardressi, eiginmaður félags- og forvarnarfulltrúa var Arsenal maður í Liverpool treyju, íslenskudeild huldi sig þjóðlegum búningi, íþróttakennarar aflituðu hárið eða hlupu allan morguninn, raungreinakennarar klæddust kuldagalla, Jói í morgunkaffinu litaði á sér augabrúnirnar og dönskukennarinn Pelle glímdi við nemanda í skyrglímu.

Alls söfnuðust 855 þúsund krónur sem er frábær árangur og vilja fulltrúar starfsmanna í góðgerðaviku, Ingunn Helgadóttir og Tómas Davíð Ibsen Tómasson koma á framfæri kærum þökkum til allra þeirra sem lögðu hönd og plóg – og sögðust að lokum fara alsæl inn í helgina.

jöz.