FÁR Í FLÓA Á VORJAFNDÆGRI

Hið einstaka og litríka FLÓAFÁR sem haldið er í FSu á hverju skólaári fór að þessu sinni fram á vorjafndægri 20. mars en þá eru dagur og nótt nánast jafnlöng. Um er ræða blöndu af keppni og hátíð – ekki ósvipað karnívali að Suður-Amerískum sið og íþróttakeppni Þórs og Útgarða-Loka sem lesa má um í Snorra-Eddu. Allur umbúnaður og skipulag var í besta lagi og sköpun enn betri enda mikið lagt í það af starfsfólki skólans og nemendum. Þátttaka var til sóma og mikið líf í kennsluhúsnæðum FSu í Odda og Hamri þennan föstudagsmorgun.

Í Flóafári hópast nemendur saman í lið og keppa innbyrðis í öllu litrófi námsgreinanna. Þar ræður hugmyndaflug kennara mestu. Hvert nemendalið fær sérstakt heimasvæði til að skreyta sem þau gerðu af mikilli hugmyndaauðgi. Í því sambandi breyttist matsalur skólans í Grænland, gryfja skólans og rýmið í kring ummyndaðist í Barbie og USA með áherslu á bleikt og blátt og í austurhluta Odda á annarri hæð fæddist Villta Vestrið. Síðan er keppt í þrautunum út um allt rými skólans í Odda og Hamri. Hugmyndaauðgi liðanna í útliti og skipulagningu heimasvæða var mikil að venju og fór keppnin vel fram. Fjögur lið voru skráð til leiks að þessu sinni sem þessu sinni nefndust Grænland, Villta Vestrið, USA og Barbie og í lokin sigraði USA.

En það sem upp úr stendur er breytingin sem verður á hefðbundnu skólastarfi. Og sú nauðsyn sem fylgir henni. Eins og um karníval og keppni sé að ræða þar sem öllu er snúið á haus og nemendur hlaupa um með fána og dansa í miðrýminu og hefðbundnir kennarar mæta klæddir eins og kökuskreytingar, Rauðhetta og úlfurinn, nunnar, munkar, hippar eða trúðar svo nokkuð sé nefnt. Áfram Flóafár : - )

jöz