DÁSAMLEGIR KÓRTÓNLEIKAR

Jólatónleikar kórs FSu fóru fram á sal skólans Gaulverjabæ þriðjudagskvöldið 24. nóvember. Um er að ræða prýðilega stilltan þrjátíu nemenda kór undir líflegri stjórn Stefáns Þorleifssonar. Tólf lög á efnisskránni sem í bland eru skilgreind jólalög og önnur lög sem sungin eru á öllum árstímum. Það sem sameinaði lagavalið var hátíðleiki og rósemd og mjúkar ballöður. Lög á borð við Halelúja og Yellow, Hjartað tók kipp, Ljós á kertum loga og Dansaðu vindur.

Virkilega vel að verki staðið og greinilegt að Stefán kórstjóri er að ná fram fjölbreyttum hæfileikum nemenda því að minnsta kosti fjórir þeirra stigu fram og sungu einsöng og enn fleiri léku á hljóðfæri eins og gítar og trommur, þverflautu og fiðlu og slagverk. Þá var uppstillingunni breytt og sviðinu gefið frí en pallar settir upp í staðinn við vesturvegginn með blárri og rauðri lýsingu. Skemmtileg og frumleg tilbreyting.

Að lokum má minna áhugasama á að kór FSu tekur þátt í jólatónleikum í Selfosskirkju 1. desember næstkomandi ásamt Lúðrasveit Selfoss, Hörpukórnum og Sunnlenskum röddum undir stjórn Stefáns Þorleifssonar og Gunnlaugs Bjarnasonar.

jöz.