Brunaæfing

Brunaæfing var í skólanum þriðjudaginn 28. sept. kl. 10. Slíkar æfingar eru haldnar reglulega einu sinni á hverri önn. Skólinn var rýmdur og tók það aðeins lengri tíma nú en oft áður. Öryggisnefnd skólans stendur fyrir æfingunum. Í nefndinni eru þeir Arnlaugur Bergsson, Guðjón Þór Emilsson, Sigurður Grímsson og Þorvaldur Guðmundsson.