LOKSINS BRÚÐULEIKHÚS Í FSu

Verkmenntakennararnir Jón Sveinberg Birgisson í rafiðn og Óskar Helgi Guðnason og Ari Már Ólafsson í tréiðn stunda nú kennsluréttindanám við Háskóla Íslands. Þar völdu þeir í sameiningu áfanga sem nefnist HÖNNUN OG SMÍÐI LEIKFANGA en megin markmið hans er að virkja sköpunargleði nemenda og vinna verkefni sem snúa að hönnun og smíði leikfanga. Eitt af verkefnunum var BRÚÐULEIKHÚS og gátu þeir FSu félagar unnið verkefnið saman í hóp. Aðspurðir sögðust þeir hafa fengið leyfi til að gera þessa skemmtilegu hugmynd að veruleika í smíðastofu FSu. Vakti það svo mikla athygli og gleði samstarfsmanna þeirra að BRÚÐULEIKHÚS SÝNINGU var slegið upp á kaffistofunni.

Þessu til viðbótar má geta þess að STIGI JÓNASAR – sem er nákvæmlega hlutfalls smíðað sýnishorn af stiganum sem varð þjóðskáldinu Jónasi Hallgrímssyni (1807 – 1845) að aldurtila - er til sem verk á bókasafni FSu. Það listaverk er hannað og smíðað af tveimur kennurum skólans – þeim Lárusi Ágústi Bragasyni sögukennara og Svani Ingvarssyni smíðakennara í tilefni af degi íslenskrar tungu.

Í ljósi þess að FSu heldur upp á 45 ára starfsafmæli sitt þann 13. september í haust gæti verið frólegt að lista upp og draga fram verk af líku tagi sem vitna um sköpunargleði nemenda og starfsmanna í gegnum áratugina.

jsb / jöz