BROTTHVARF OG GERVIGREIND

FSu tekur núna þátt í alþjóðlegu þróunarverkefni sem snýr að brotthvarfi nemenda úr námi og hagnýtingu gervigreindar til að draga úr því brotthvarfi. Háskóli Íslands leiðir þessa vinnu og óskaði eftir aðkomu FSu. Heiðurskonan Halla Dröfn Jónsdóttir skólafélagsráðgjafi FSu var fulltrúi skólans á vinnufundi í Brussel í liðinni viku. Verkefnið kallast stAI en fyrri hluti hugtaksins vísar til nemenda (student) en seinni hlutinn til gervigreindar (AI).

Vinnufundur fór fram í belgísku borginni Brussel dagana 3. til 5. febrúar síðastliðinn. StAI-verkefnið snýst um að hanna gervigreind sem getur hjálpað til við að greina nemendur í áhættu svo hægt sé að grípa fyrr inn í og draga þannig úr ótímabæru brotthvarfi úr námi.

Á fundinum í Brussel var unnið markvisst að því að prófa verkfærið, ræða möguleika þess og takmarkanir, auk þess sem lögð var áhersla á siðferðisleg álitaefni, gæði gagna og ábyrgð í notkun gervigreindar í menntun. FSu er eini íslenski framhaldsskólinn sem kemur að þessum hluta verkefnisins. Framlag þátttakenda fólst meðal annars í að prófa verkfærið og veita endurgjöf sem nýtist við áframhaldandi þróun þess.

Það verður áhugavert að fylgjast með framvindu þessa mikilvæga og alþjóðlega verkefnis á næstu misserum.

 

hdj / ss / jöz