Brautskráning frá FSu

Föstudaginn 21. maí var brautskráning frá Fjölbrautaskóla Suðurlands. Alls útskrifuðust 117 nemendur að þessu sinni, þar af 65 með stúdentspróf. Af félagsfræðibraut brautskráðust flestir, eða 36, af náttúrufræðibraut 13 og viðskipta- og hagfræðibraut 11. Grunndeild í verknámi luku 22 nemendur og 13 luku húsasmíðabraut. Er þetta með fjölmennustu útskriftarhópum skólans þó ekki sé um met að ræða.