Boxlið FSu í sjónvarpi

Gerður hefur verið sjónvarpsþáttur um  Boxið, framkvæmdakeppni framhaldsskólanna, sem haldin var í Háskólanum í Reykjavík í nóvember síðastliðnum. Í þættinum keppa 8 framhaldsskólar til úrslita en 18 lið tóku þátt í forkeppninni. Boxið er skemmtilegur vettvangur fyrir framhaldsskólanema til að reyna á hug- og verkvit af ýmsum toga. Liði FSu gekk vel í keppninniog hafnaði í 3. sæti.

Þátturinn verður á dagskrá á RÚV næsta fimmtudag, 9. janúar kl. 20.

Nánari upplýsingar um Boxið má finna á: http://boxid.ru.is/