Blá skrímsli í heimsókn

Skólinn fylltist af dansandi og syngjandi skrímslum í liðinni viku. Þar voru á ferð dimmitantar, nemendur sem stefna á að ljúka námi á vorönn. Skrímslin stigu dans og sungu fyrir nemendur og starfsfólk. Því næst gæddu þeir sér á kjötsúpu með starfsfólki og héldu svo út í óvissuferð. Nú er próflestur tekinn við, en um 160 nemendur hyggjast brautskrást úr námi við skólann, 117 stúdentar og 43 af öðrum brautum. dimm3Brautskráning vorannar fer fram föstudaginn 27. maí og hefst kl. 14. Fleiri myndir má finna á fésbókarsíðu skólans.