Árshátið Nemendafélags FSu

Árshátíð Nemendafélags FSu verður haldin í Hvíta húsinu miðvikudaginn 10. febrúar. Páll Óskar mætir á svæðið og sér um stuðið til 2 um nóttina. Tveir nemendur skólans sjá um veislustjórn og undir borðhaldi kemur Björn Bragi og verður með uppistand auk þess sem Bjössi trúbador mun spila ljúfa tóna.

Fyrsta kennslustund fimmtudaginn 11. febrúar fellur niður vegna árshátiðarinnar. Sjá má tímatöflu vegna morgunaksturs þann dag á meðfylgjandi mynd.