Aron Óli og Hörður eru dúxar FSu á vorönn

Að þessu sinni dúxuðu tveir nemendur, þeir Aron Óli Lúðvíksson og Hörður Kristleifsson.
Að þessu sinni dúxuðu tveir nemendur, þeir Aron Óli Lúðvíksson og Hörður Kristleifsson.

Aron Óli Lúðvíksson og Hörður Kristleifsson eru dúxar FSu á vorönn 2017. 115 nemendur brautskráðust frá Fjölbrautaskóla Suðurlands föstudaginn 26. maí, þar af voru 81 nemendur sem luku stúdentsprófi.

Skipting nemenda á brautir vor 2017 :

9  nemendur ljúka prófi af grunnbraut ferða – og matvælagreina

8 nemendur ljúka námi í húsasmíði og tóku þeir sveinspróf liðna helgi

1 nemandi lýkur meistaranámi í húsasmíði

4 nemendur ljúka námi af grunnbraut rafiðna

1 námi af grunnbraut bíliðna

2 af grunnbraut málmiðna

1 nemandi lýkur námi af grunnbraut bygginga og mannvirkjagreina

7 nemendur ljúka prófi af starfsbraut

1 nemandi lýkur námi af listnámsbraut

81 nemandi luku stúdentsprófi

Skipting á stúdentsbrautir og línur er eftirfarandi:

47 nemendur ljúka námi af opinni stúdentsbraut

8 nemendur af félagsgreinlínu stúdentsbrautar,

10 nemendur ljúka námi af náttúrufræðilínu stúdentsbrautar

7 nemendur ljúka námi af viðskipta- og hagfræðilínu stúdentsbrautar

2 nemendur ljúka námi af hestalínu stúdentsbrautar

1 nemandi lýkur námi af alþjóðalínu stúdentsbrautar

1 lauk stúdentsprófi af listalínu

5 nemendur ljúka námi af stúdentsbraut eftir starfsnám

 

Aron Óli Lúðvíksson og Hörður Kristleifsson hlutu viðurkenningar frá Hollvarðasamtökum FSu. Aron Óli hlaut að auki viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í ensku og stærðfræði. Guðrún Óskarsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir góða ástundun og árangur í stærðfræði. Guðrún hlaut einnig viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í raungreinum. Gezley Ann Ilustre hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í tungumálum (spænsku, frönsku, dönsku, ensku og íslensku). Sigurbjörg Eva Helgadóttir hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í sögu. Sigurjón Bergur Eiríksson hlaut viðurkenningar fyrir miklar framfarir í sögu og frábærarn árangur og þrautseigju á Starfsbraut. Sigurjón Bergur fékk einnig viðurkenningu fyrir mikinn áhuga, vinnusemi og jákvæðni sem skilaði sér með góðum árangri og mikilli framför í myndlist. Katla Björg Ómarsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur og vinnusemi í íþróttum og íþróttafræði. Írena Birta Gísladóttir hlaut viðurkenningu fyrir fyrirmyndar þátttöku í handverki og hönnun. Aðalsteinn Sakarías Jóhannsson hlaut viðurkenningu fyrir hugmyndaauðgi, skopskyn og vinnusemi í myndlist. Bjarni Friðrik Ófeigsson hlaut viðurkenningu fyrir mjög góðan árangur í rafmagnsgreinum. Kristbjörg Harpa Thomsen hlaut viðurkenningu fyrir ágæta frammistöðu og áhuga í matvælagreinum. Auður Erla Gunnlaugsdóttir og Móeiður Sigrún Guðlaugsdóttir hlutu viðurkenningar fyrir frábæran árangur og góða ástundun í hárgreiðlsu á Starfsbraut. Þorkell Ingi Sigurðsson, Sesselja Dan Róbertsdóttir og Sveinn Ægir Birgisson hlutu viðurkenningar fyrir vel unnin störf að félagsmálum.

Einnig voru þau Jóna Ingvarsdóttir og Hannes Stefánsson, kennarar við skólann heiðraðir og þeim færður þakklætisvottur frá skólanum.

Á myndinni eru þeir Aron Óli og Hörður, dúxar FSu. Fleiri myndir frá brautskráningu má finna á fésbókarsíðu skólans.