Arnór Ingi er dúx FSu

Arnór Ingi Grétarsson, dúx FSu á haustönn 2019
Arnór Ingi Grétarsson, dúx FSu á haustönn 2019

Arnór Ingi Grétarsson er dúx FSu á haustönn 2019. Hann útskrifaðist af tveimur stúdentslínum, viðskipta- og hagfræðilínu og alþjóðalínu. Arnór Ingi hlaut einnig viðurkenningu frá Hollvarðasamtökum FSu og margar viðurkenningar fyrir nám í einstökum námsgreinum.  

48 nemendur brautskráðust frá Fjölbrautaskóla Suðurlands föstudaginn 20. desember.

Tíu nemendur luku námi af sjúkraliðabraut, þar af tveir af sjúkraliðabrú, einn lauk grunnnámi málmiðna, tveir nemendur luku námi á vélvirkjabraut, einn nemandi lauk námi á húsasmíðabraut. Þá brautskráðust 35 stúdentar, 20 af opinni línu, þrír af félagsgreinalínu, tveir af náttúrufræðilínu, tveir af viðskipta- og hagfræðilínu, þrír af íþróttalínu, tveir af listalínu, einn af alþjóðalínu og loks einn nemandi sem lauk námi á stúdentsbraut að loknu námi á vélvirkjabraut.

Arnór Ingi Grétarsson hlaut viðurkenningar fyrir afburða árangur í stærðfræði, góðan árangur í íslensku, mjög góðan árangur í ensku, afburða árangur í frönsku, spænsku og þýsku. Að auki fékk Arnór Ingi sérstaka viðurkenningu fyrir einstaka frammistöðu, alúð og áhuga í tungumálanámi. Sigrún Elfa Ágústsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir frábæran árangur í stærðfræði og viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur, dugnað og metnað í félagsvísindum. Marta María Bozovic Siljudóttir hlaut viðurkenningu fyrir ágætan árangur í dönsku og viðurkenningu fyrir góðan árangur og dugnað í íþróttum og íþróttafræðum. Íris Hanna Rögnvaldsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir ágætan árangur í hjúkrunargreinum. Þuríður Ósk Ingimarsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir ágætan árangur í dönsku. Kolbrún Katla Jónsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í íslensku og Eyþór Björnsson hlaut viðurkenningu fyrir frábæran árangur í vélvirkjagreinum.

Stjórn Hollvarðasamtaka Fsu heiðraði fráfarandi formann samtakanna, Hjört Þórarinsson, en hann hefur lengi verið ötull talsmaður skólans, var formaður skólanefndar um langt skeið og stofnaði Hollvarðasamtökin ásamt fleirum á sínum tíma.

Tveir kennarar voru heiðraðir við starfslok á brautskráningu. Það voru þau Helga Jóhannesdóttir, textíl- og hönnunarkennari og Gísli Skúlason íslenskukennari. Þau hafa bæði starfað við skólann undanfarin 35 ár, en láta nú af störfum. Þeirra framlag til skólans er ómetanlegt.

Á myndinni er Arnór Ingi, dúx Fsu.

Fleiri myndir frá brautskráningu má finna á myndasíðu skólans.