Appelsínugul viðvörun 26. mars

Kennsla verður skv. stundaskrá. Sú ákvörðun var tekin út frá leiðbeiningum almannavarna um veðurviðvaranir og í samráði við skólastjórnendur grunnskóla Árborgar.

Búast má við einhverri röskun á skólastarfi  en nemendur og foreldrar/forráðamenn hafa fengið tölvupóst frá skólanum með nánari upplýsingum. Staðan verður endurmetin að morgni 26. mars ef þörf er á. Þó kennsla sé skv. stundaskrá þá verður hver og einn að meta aðstæður í sínu tilviki. Hafið öryggið í fyrirrúmi.

Nemendur/foreldrar eru beðnir að fylgjast vel með INNU/heimasíðu skólans og upplýsingum á www.vedur.is og www.umferdin.is