Allir á Alla leið heim

Nú standa yfir sýningar á söngleik Nemendafélags FSu í Hólmaröst á Stokkseyri. Þetta er gamanleikurinn Alla leið heim, gerður eftir myndinni O Brother Where Art Thou eftir hina svokölluðu Cohen-bræður. Verkið fjallar um þrjá strokufanga á leið sinni aftur á heimaslóðir þar sem einn þeirra stendur í þeirri trú að hann eigi fjársjóð.