ÁFRAM FSu
26.03.2026
Töluverð hefð er fyrir þátttöku og jöfnu gengi FSu í spurningakeppni framhaldsskólanna GETTU BETUR. Þó langt sé um liðið má stöðugt minna á að skólinn sigraði Flensborg í úrslitaviðureign fyrstu keppninnar sem fram fór árið 1986. Núna er FSu komið í undanúrslit eftir að hafa lagt Fjölbrautaskóla Vesturlands nokkuð örugglega að velli 27 – 14 í síðustu viku. Að þessu sinni mætir FSu liði MR sem hefur hampað hljóðnemanum margsinnis. Lið FSu skipa heiðursnemendurnir Hjálmar Vilhelm Rúnarsson, Hrafnhildur Svava Hemmert Sigurðardóttir og Valgeir Gestur Eysteinsson. Þjálfari liðsins er íslenskukennarinn Stefán Hannesson. Þeim ber öllum að fagna og árangri þeirra og hlakka til keppninnar sem hefst á RÚV klukkan 20.15 í kvöld. Áfram FSu : - )
jöz.







