Aðalfundur KFSu

Aðalfundur Kennarafélags FSu var haldinn föstudaginn 25. september. Á fundinum var kjörin ný stjórn félagsins. Hana skipa Hörður Ásgeirsson, Hulda Finnlaugsdóttir, Ægir Pétur Ellertsson og Brynja Ingadóttir. Fráfarandi formaður, Helgi Hermannsson, tekur nú sæti í samstarfsnefnd. 22 félagsmenn sáu sér fært að mæta á fundinn af þeim rúmlega 60 kennurum sem teljast vera til viðtals við skólann.