Aðalfundur Foreldrafélags FSu

Aðalfundur Foreldrafélags FSu var haldinn fimmtudaginn 24. september, og jafnframt var kynning á skólanum og ýmsu í starfsemi hans. Nýkjörna stjórn skipa Anna Margrét Magnúsdóttir formaður, Dagný Magnúsdóttir varaformaður, Elín Höskuldsdóttir gjaldkeri, Emma Guðnadóttir ritari og Eva Björk Lárusdóttir meðstjórnandi. Í varastjórn eru  Steinunn Jónsdóttir, Eiríkur Þórkelsson og Hjalti Tómasson.