Fréttabréf 2022

Fréttabréf Hollvarðasamtakanna í október 2022

Afmælisgjöf til FSu

Myndin er afmælisgjöf Hollvarðasamtakanna til FSu í tilefni 40 ára afmælis skólans.

 

Ágætu Hollverðir og vinir Fjölbrautaskóla Suðurland

Eins og þið eflaust vitið þá varð skólinn okkar 40 ára þann 13. september 2021. Ekki tókst að halda upp á þau
tímamót þá en við stefnum enn á að gera eitthvað skemmtilegt til að fagna þeim tímamótum. Hver segir að 40 ár
séu merkilegri en 41 eða 42 ár?

Nú sem fyrr þurfum við á styrkjum ykkar að halda og vonum að þið takið jákvætt í beiðni um greiðslu árgjalds.
Árgjaldið er áfram 2000 krónur.

Í heimabanka ykkar mun koma ósk um greiðslu á þessum 2000 krónum sem ganga til Hollvarðarsamtakanna.

Við biðlum til ykkar um að styrkja Hollvarðasamtökin og ekki síst að fá félaga ykkar sem voru í skólanum með
ykkur til að ganga í Hollvarðasamtökin. Það munar um hvern og einn. Hollverðir hafa veitt námsstyrki við
brautskráningu og einnig styrki til bókasafnsins, skólakórsins sem hefur nú verið endurvakinn, söguskráningar
skólans og sönglagastyrki. Ýmsa aðra styrki má nefna.

Markmið samtakanna er að auka tengsl skólans við fyrrum nemendur sína og aðra þá sem bera hag hans fyrir
brjósti. Einnig að styrkja og efla skólann eftir fremsta megni, fjárhagslega eða á annan hátt.

Á heimasíðu FSu má finna krækju á vef Hollvarðasamtakanna en Helgi Hermannsson kennari og starfsmaður
samtakanna sér um síðuna í samráði við stjórn Hollvarðarsamtakanna.
Slóðin er https://www.fsu.is/is/um-skolann/samstarf/hollverdir
Sömuleiðis eru samtökin með fésbókarsíðu sem gaman væri að þið fylgdust með.

Í maí s.l., eftir útskrift var aðalfundur Hollvarðarsamtakanna haldinn og þá var ný stjórn kosin.

Stjórnina skipa:
Vera Ósk Valgarðsdóttir, formaður
Anna Árnadóttir ritari
Sigþrúður Harðardóttir gjaldkeri
Andrea Inga Sigurðardóttir, fulltrúi starfsmanna skólans
Formaður Nemendaráðs, fulltrúi nemenda skólans
Starfsmaður stjórnar er Helgi Hermannsson

Stjórnin