Fréttabréf 2020

Fréttabréf Hollvarðasamtakanna 2020

Það er regnbogi yfir góða gula skólanum okkar, þá er að óska sér! 

Við í Hollvarðasamtökum skólans þökkum kærlega stuðning ykkar á undaförnum árum.
Sólguli góði skólinn okkar þarf enn og aftur á ykkar hjálp að halda.Samþykkt var á aðalfundi
Hollvarðasamtakanna 2018 að hækka árgjaldið hjá einstaklingum í 2000. kr. Gjaldið hefur
verið óbreytt frá stofnun samtakanna áríð 2002 kr. 1000 . Við vonumst til þess að þið styrkið
okkur áfram. Það er mikilvægt fyrir okkur því nú nálgast 40 ára afmæli skólans, hann
verður 40 ára 13. september 2021. Við þurfum að efla sjóð Hollvarða til þess að geta tekið
þátt í öflugri afmælishátíð með góðum gjöfum, þátttöku og stuðningi af ýmsu tagi. Einnig væri
æskilegt að hækka styrkupphæð til nemenda við brautskráningu. 
Við treystum á tryggð ykkar við skólann og samtökin og styrkið okkur.

 Markmið samtakanna er að auka tengsl skólans við fyrrum nemendur sína og aðra þá sem bera hag hans fyrir brjósti. Einnig að styrkja og efla skólann eftir fremsta megni, fjárhagslega eða á annan hátt.“

Hollverðirnir hafa veitt námsstyrki við brautskráningu og styrki til bókasafnsins, til einstakra nemenda í vanda, og ýmsa aðra styrki.  

Þau ykkar sem ekki eru Hollverðir en vilja verða það er bent á að senda Helga Hermannsyni tölvupóst hhm@fsu.is; eða ræða við hann. Helgi er starfsmaður Hollvarða.

Undir heimasíðu skólans fsu.is er vefur samtakanna. Skoða má síðuna undir liðnum “Samstarf” á fsu.is. en slóðin er http://www.fsu.is/is/um-skolann/samstarf/hollverdir

Fylgist endilega með facebook https://www.facebook.com/HollvardasamtokFsu síðu samtakanna og einnig með heimasíðunni.

 

Stjórn samtakanna:
Örlygur Karlsson formaður.
Anna Árnadóttir ritari
Sigþrúður Harðardóttir gjaldkeri
Andrea Inga Sigurðardóttir fulltrúi starfsmanna skólans.

Formaður Nemendaráðs er fulltrúi nemenda skólans

Starfsmaður stjórnar er Helgi Hermannsson.