Fréttabréf 2018

Nóvember 2018

Ágæti Hollvörður, Fjölbrautask.  Suðurlands

 „Hollverðir skólans“ þið eruð fleiri en skráðir eru í félagatali.  Það munar um hvern og einn sem stendur að baki þessari dýrmætu menningastofnun Suðurlands. Verkefni Hollvarða geta verið margvísleg. Bæði beinn fjárstuðningur og óbeinn stuðningur til framdráttar og velferðar skólans.

 

 „Markmið samtakanna er annars vegar að auka tengsl FSu við fyrrum nemendur sína og aðra  þá sem bera hag skólans  fyrir brjósti, hins vegar að styrkja og efla skólann eftir fremst  megni, fjárhagslega eða á annan hátt, en einnig og ekki síst að rækta og alefla samband félagsfólks sín á milli“.

 

Styrkveitingar.  Námsstyrkir að upphæð 3.720.000 kr hafa verið veittir til  66 brottfarenda á sl. 17 árum.  Þá hafa verið veittir styrkir til bókasafnsins, skólakórsins, söguskráningu skólans og sönglagakeppni,  Video upptökuvél ofl.

 

Skráning á sögu skólans í tali og myndum. Hafin er hljóðritun viðtala við eldri starfsmenn skólans, sem upplifðu fyrstu starfsárin.  Yfir 6000 ljósmyndir úr sögu skólans hafa verið skannaðar. Hægt er að nálgast hluta af þeim á Youtube-síðu Fsu

 

Uppfærsla félagatals 2017. Á síðasta ári voru skráðir 372 félagsmenn og 53 fyrirtæki og stofnanir.  Þetta er hópurinn sem stendur á bak við starfsemi samtakanna og gefur möguleika á að veita hina ýmsu styrki til skólans og nemenda hans. Árgjaldið hefur  verið óbreytt í 17  ár Fyrirtæki greiða  3.700 kr en einstaklingar  1.000. kr

Reikningsnúmer Hollvarðasamtakanna er 1169-26-302,  kt. 620302-3680

 

Undir heimasíðu skólans fsu.is er vefur samtakanna og hefur Helgi Hermannsson, kennari við skólann og starfsmaður samtakanna, séð um þá síðu í samráði við stjórn.  Skoða má síðuna  undir liðnum “Samstarf” á fsu.is.  en slóðin er http://www.fsu.is/is/um-skolann/samstarf/hollverdir

 

Stjórn samtakanna: 
Hjörtur Þórarinsson formaður,
Anna Árnadóttir gjaldkeri,
Sigþrúður Harðardóttir  ritari,
Andrea Inga Sigurðardóttir, fulltrúi starfsmanna skólans.
Matthías Bjarnason, fulltrúi nemenda.
Starfsmaður stjórnar er Helgi Hermannsson