Fréttabréf 2017

Hollvarðarsamtök FSu 

Ágæti Hollvörður Fjölbrautaskóla Suðurlands

 

„Hollverðir skólans“ þið eruð fleiri en skráðir eru í félagatali. Þið birtust og urðu sýnileg þegar unnið var að öflun fjár við endurreisn Verknámshússins á sl. ári. Hafi þið mikla þökk fyrir ómetanlegan stuðning við skólann.   Það munar um hvern og einn sem stendur að baki þessari dýrmætu menningastofnun Suðurlands. Verkefni Hollvarða geta verið margvísleg. Bæði beinn fjárstuðningur og óbeinn stuðningur til framdráttar og velferðar skólans.

 

Markmið samtakanna er annars vegar að auka tengsl FSu við fyrrum nemendur sína og aðra  þá sem bera hag skólans  fyrir brjósti, hins vegar að styrkja og efla skólann eftir fremsta  megni, fjárhagslega eða á annan hátt, en einnig og ekki síst að rækta og alefla samband félagsfólks sín á milli“.

 

Styrkveitingar.  Námsstyrkir að upphæð 3.255.000 kr hafa verið veittir til  59 brottfarenda á s.l. 16 árum.  Þá hafa verið veittir styrkir til bókasafnsins, skólakórsins, söguskráningu skólans,  sönglagakeppni, myndbandsupptökuvélar  ofl.

 

Skráning á sögu skólans í tali og myndum. Hafin er hljóðritun viðtala við eldri starfsmenn skólans, sem upplifðu fyrstu starfsárin.  Yfir 6000 ljósmyndir úr sögu skólans hafa verið skannaðar. Hægt er að nálgast hluta af þeim á Youtube-síðu FSu

 

Árgjöld 2016 greiddu  355  félagar og 44 fyrirtæki.  Þetta er hópurinn sem stendur á bak við starfsemi samtakanna og  gefur möguleika á að veita hina ýmsu styrki til skólans og nemenda hans. Árgjaldið hefur  verið óbreytt í 16  ár. Fyrirtæki greiða  3.700 kr en einstaklingar  1.000. kr.

Reikningsnúmer Hollvarðasamtakanna er 1169-26-302,  kt. 620302-3680

 

Undir heimasíðu skólans fsu.is er vefur samtakanna og hefur Helgi Hermannsson, kennari við skólann og starfsmaður samtakanna, séð um þá síðu í samráði við stjórn.  Skoða má síðuna  undir liðnum “Samstarf” á fsu.is.  en slóðin er http://www.fsu.is/is/um-skolann/samstarf/hollverdir

 

Facebook síða Hollvarða
Hollvarðasamtökin halda líka úti síðunni:  https://www.facebook.com/HollvardasamtokFsu þar sem reynt er að birta fróðleik og upplýsingar um starf samtakanna og sögu skólans.

 

Stjórn samtakanna: Hjörtur Þórarinsson formaður, Anna Árnadóttir gjaldkeri, Sigþrúður Harðardóttir  ritari, Nanna Þorláksdóttir fulltrúi starfsmanna skólans og Þórunn Ösp Jónsdóttir fulltrúi nemenda.