Fréttabréf 2015

Fréttabréf okt.  2015

Markmið samtakanna

„Markmið samtakanna er annars vegar að auka tengsl FSu við fyrrum nemendur sína og aðra  þá sem bera hag skólans  fyrir brjósti, hins vegar að styrkja og efla skólanneftir fremst  megni, fjárhagslega eða á annan hátt, en einnig og ekki síst að rækta og alefla samband félagsfólks sín á milli“.

Helstu verkefni. 

Námsstyrkir hafa verið veittir til  51 brottfarenda á s.l. 14 árum  Þá hafa verið veittir styrkir til bókasafnsins, skólakórsins, söguskráningu skólans og sönglagakeppni. Hollvarðasamtökin hafa verið aðilar að 25  ára og  30 ára  afmælishátíðar samkomum. Tengsl við afmælisárganga skólans hafa verið  öll árin.  Kynning á starfseminni hefur farið fram við skólaslit.

Skráðir  félagar.

Í ársbyrjun voru skráðir  félagar 378 og 55 fyrirtæki   Þetta er hópurinn sem stendur á bak við starfsemi samtakanna og gefur möguleika á að veita hina ýmsu styrki til skólans og nemenda hans. Árgjaldið hefur  verið óbreytt í 13  ár Fyrirtæki greiða  3.700 kr+ seðilgjald  en einstaklingar  1.000.- 

    Reikningsnúmer Hollvarðasamtakanna er 1169-26-302,  kt 620302-3680 

Aðalfundur og stjórn Hollvarðasamtaka FSu

Aðalfundur var haldinn að lokinni útskrift á vorönn. Við útskrift á brottfararhátíð hafa alltaf nokkrir  aðstandendur nemenda verið að bætast í hópinn,  Árið eftir að brottfarendur  hafa kvatt skólann fá þeir senda beiðni eða valfrjálst tilboð að skrá sig í samtökin.

Stjórn samtakanna skipa.  Hjörtur Þórarinsson formaður, Anna Árnadóttir gjaldkeri, Sigþrúður Harðardóttir  ritari, Nanna Þorláksdóttir fulltrúi starfsmanna skólans og Þorkell Ingi Sigurðsson fulltrúi nemenda. Helgi Hermannsson starfsmaður stjórnar.

Heimasíða skólans og tengsl við félagana               

Undir heimasíðu skólans fsu.is er vefur samtakanna og hefur  Helgi Hermannsson kennari við skólann séð um þá síðu í samráði við stjórn. Skoða má síðuna  undir liðnum “Samstarf” á fsu.is.  en slóðin er  http://fsu.is/hvfsu/   

Helgi hefur einnig  tekið að sér að halda utan um félagaskrá samtakanna og viðhald hennar.   Helgi  hefur unnið upp þau tengsl sem hafa “netfest” okkur við þann mikla fjölda sem styrkir okkur í þögn en heldur tryggð við skólann sinn.

Hjörtur Þórarinsson, formaður          lourimi15@internet.is

Anna Árnadóttir gjaldkeri                 annaarna@gmail.com

Sigþrúður Harðardóttir ritari            sissa@toppnet.is

Nanna Þorláksdóttir                          nannathor@gmail.com

Helgi Hermannsson                           helgiher@gmail.com

Þorkell Ingi Sigurðsson                     torkell.ingi98@gmail.com