Fréttabréf 2013

 Fréttabréf okt 2013

Markmið samtakanna:
Markmið samtakanna er annars vegar að auka tengsl FSu við fyrrum nemendur sína og aðra  þá sem bera hag skólans  fyrir brjósti, hins vegar að styrkja og efla skólann eftir fremst  megni, fjárhagslega eða á annan hátt, en einnig og ekki síst að rækta og alefla samband félagsfólks sín á milli.

Helstu verkefni, 
Hollvarðasamtökin hafa verið aðilar að 25  ára og  30 ára  afmælishátíðar samkomum. Námsstyrkir hafa verið veittir til  42 brottfarenda á sl. 12 árum  Þá hafa verið veittir styrkir til bókasafnsins, skólakórsins, söguskráningu skólans, sönglagakeppni.  Tengsl við afmælisárganga skólans hafa verið  öll árin, Kynning á starfseminni hefur farið fram við skólaslit

Skráðir  félagar.  
Í ársbyrjun voru skráðir  félagar 339 og 39 fyrirtæki   Þetta er hópurinn sem stendur á bak við starfsemi samtakanna og gefur möguleika á að veita hina ýmsu styrki til skólans og nemenda hans Árgjaldið hefur  verið óbreytt í 12  ár Fyrirtæki greiða  3.700 kr en einstaklingar  1.000,

Aðalfundur og stjórn Hollvarðasamtaka FSuAðalfundur hefur verið haldinn að lokinni útskrift á vorönn.  Við útskrift á brottfararhátíð hafa alltaf nokkrir  aðstandendur nemenda verið að bætast í hópinn,  Árið eftir að brottfarendur  hafa kvatt skólann fá þeir senda beiðni og/eða tilboð að skrá sig í samtökin.Stjórn samtakanna skipa.  Hjörtur Þórarinsson formaður, Anna Árnadóttir gjaldkeri, Sigþrúður Harðardóttir  ritari, Nanna Þorláksdóttir fulltrúi starfsmanna skólans og Rakel Lind Úlfhéðinsdóttir fulltrúi nemenda.

Heimasíða skólans og tengsl við félagna Undir heimasíðu skólans fsu.is er vefur samtakanna og hefur  Helgi Hermannsson kennari við skólann séð um þá síðu í samráði við stjórn. Skoða má síðuna  undir liðnum “Samstarf” á fsu.is.  en slóðin er  https://www.fsu.is/is/um-skolann/samstarf/hollverdir / Einnig er komin facebook síða Hollvarða https://www.facebook.com/HollvardasamtokFsu   

Helgi hefur einnig  tekið að sér að halda utan um félagaskrá samtakanna og viðhald hennar.   Helgi  hefur unnið upp þau tengsl sem hafa “netfest” okkur við þann mikla fjölda sem styrkir okkur í þögn en heldur tryggð við skólann sinn.

 

Hjörtur Þórarnsson