Fréttabréf 2006


Fréttabréf nr. 3 – mars 2006


Kæri Hollvörður


Um leið og við sendum þér gíróseðil fyrir félagsgjaldi ársins 2005 viljum við þakka þér stuðninginn og segja nokkrar fréttir af högum samtakanna okkar sem nú eru að verða fjögurra ára..


Árgjald er áfram óbreytt ; kr. 900 fyrir einstaklinga en 3.600 kr. hjá fyrirtækjum og félagasamtökum.


Í stjórninni sem kosin var á aðalfundinum 21. maí 2004 voru Hjörtur Þórarinsson formaður, Anna S. Árnadóttir gjaldkeri, Sigurður Eyþórsson ritari. Starfsmannafélag F.Su. tilnefndi Nönnu Þorláksdóttur sem fulltrúa sinn og NFSu tilnefndi Hildi Sigurgrímsdóttur.


Á aðalfundi 2005 sem haldinn var föstudaginn 27. maí 2005 var stjórnin endurkjörin óbreytt, nema að því leyti að Ragnar Gylfason er nú fulltrúi NFsu. Sú hefð er komin á að aðalfundur samtakanna sé haldinn á útskriftardegi vorannar í skólanum. Útskriftin er vanalega kl. 14.00 og hefst þá fundurinn eftir kaffið að lokinni útskrift um kl. 16. Við bendum félagsmönnum á að næsti fundur verður örugglega haldinn með svipuðum hætti vorið 2006.


Markmið samtakanna okkar er annars vegar að auka tengsl F.Su við fyrrum nemendur sína og aðra þá sem bera hag skólans fyrir brjósti, hins vegar að styrkja og efla skólann eftir fremsta megni, fjárhagslega eða á annan hátt, en einnig og ekki síst að rækta og efla samband félagsfólks sín á milli.. Þetta viðfangsefni er stöðugt í mótun, en hefur hingað til falist helst í því að styrkja góða útskriftarnemendur og önnur verkefni skólanum til heilla.


Stjórn Hollvarðasamtakanna hefur venju samkvæmt veitt námsstyrk til þess nemanda eða nemenda sem eru fremstir meðal jafningja við lokapróf frá skólanum á hverri önn. Við útskrift á vorönn 2004 fékk Magnhildur Ingólfsdóttir 50.000 króna styrk. Við útskriftina á haustönn 2004 hlutu þær Ösp Viðarsdóttir, Björk Grétarsdóttir og Þórdís Emma Stefánsdóttir 25.000 króna styrk hver. Við útskriftina á vorönn 2005 hlaut Elín Magnúsdóttir 50.000 króna styrk. Sama styrk hlaut síðan Dórótea Höeg Sigurðardóttir við haustútskriftina 2005. Formaður samtakanna, Hjörtur Þórarinsson afhenti styrkinn fyrir þeirra hönd.


Á aðalfundi 2004 var einnig samþykkt að styrkja bókasafn skólans um 100.000 krónur til kaupa á DVD spilara og kennsludiskum. Bókasafnið sendi samtökunum þakkarbréf vegna þess fyrir skömmu og lýsti í hvernig fénu var varið og ljóst er að styrkurinn kom að góðum notum.


Undirbúningur er hafinn að söguritun skólans sem yrði framhald söguritunar fyrsta áratugs skólans 1981-1991 sem þegar hefur verið gefin út. Stjórn Hollvarðasamtakanna hefur samþykkt fyrirheit um styrk til verkefnisins.


Nú er verið að undirbúa að færa skólanum myndarlegan ræðustól að gjöf vegna 25 ára afmælis hans á þessu ári. Það væri ekki kleift nema fyrir framlög ykkar félagsmanna. Undir heimasíðu skólans fsu.is er vefur samtakanna og hefur Helgi Hermannsson kennari við skólann séð um þá síðu í samráði við stjórn. Skoða má síðuna undir liðnum “Samstarf” á fsu.is.


Stjórnin vill endilega heyra frá félagsmönnum og eru allar hugmyndir og ábendingar um starf samtakanna vel þegnar. Hægt er að senda Önnu Árnadóttur gjaldkera tölvupóst á netfangið gundisig@simnet.is og Sigurði Eyþórssyni ritara á netfangið sigey@framsokn.is.

Margir eldri árgangar hafa komið á útskriftir og fært skólanum fjárupphæðir til sérstakra verkefna. Hollvarðasamtökin geta aðstoðað við koma því á að eldri árgangar komi á útskriftarhátíðir og rækti samband sitt við skólann um leið og þeir hitta gamla skólafélaga.


Unnið er nú að endurskoðun félagatalsins samtakanna en félagar eru um 300 bæði einstaklingar og fyrirtæki. Við viljum benda á að hægt er að skrá sig í samtökin á heimasíðu skólans fsu.is (Undir liðnum “Samstarf" eins og getið er að ofan).


Útskriftarnemendur hvers árs eru skráðir inn árið eftir útskrift og mun gefast kostur á að ganga til liðs við samtökin ef þeir kjósa. Þeir greiða þó ekki félagsgjald fyrr en ári eftir námslok í Fsu.


Að lokum hvetjum við þig til þess að fylgjast með fréttum af skólanum á vef hans fsu.is. Hægt er að skrá sig á póstlista þar og fá fréttirnar sendar í tölvupósti í hverri viku.
Stjórnin