Aðalfundur 2026
Aðalfundur Hollvaraðasamtaka Fjölbrautaskóla Suðurlands 29.mai 2026
Mættir: Sigþrúður Harðardóttir , Selma Björk Jónsdóttir , Helgi Hermannsson og Örlygur Karlsson.
Sigþrúður formaður setti fund kl.15.30 .
1. Kosning fundarstjóra Örlygur Karlsson (samþykkt)
2. Kosning fundarritara Selma Björk Jónsdóttir í fjarveru Söndru Gunnarsdóttur (samþykkt).
- Sigþrúður flutti skýrslu stjórnar frá síðasta ári. Þar kom meðal annars fram það helsta í starfinu s.s. fundahöld, styrkir sem rafvirkjabraut og vélvirkjabraut fengu frá fyrirtækjum í atvinnulífinu, en greiðsla þeirra fór fram í gegnum samtökin. Skýrsla samþykkt.
- Sigþrúður laði fram reikninga félagsins fyrir árið 2025.Rætt um útgjöld , sem eru aðallega styrkir, verðlaun og gjafir. Hollvarðarsamtökin gefi skólanum gjöf í tilefni 45 ára afmælis í haust. Hugmynd um kaup á kvikmyndavél.
Reikningar samþykktir. - Félagsgjöld - Hækkuð í fyrra í 10.000 og voru sömu innheimtur. Innkoma hefur hækkað þrátt fyrir hækkun á innheimtu. Brynja og Sandra hafa haldið áfram að safna fyrirheitum. Hugmynd að fjölga kvenfélögum og hafa innheimtur 5000 kr.
- Lagabreytingar – engar tillögur um breytingar
- Kosning stjórnar - áfram sama stjórn.
- Skoðun reikninga - Ásmundur Sverrir og Gunnar
- - Námsstyrkir – ákveðið að styrkja áfram erlenda nema að upphæð 100.000
- Samtökin afhentu að vanda námsstyrki til nemenda sem hæstu einkunn hlutu við brautskráningu.
Önnur mál :
- Rætt um muni sem skólinn hefur eignast í gegnum tíðina og snerta sögu skólans. Örlygur afhenti stjórn lista yfir muni og greindi frá staðsetningu þeirra sem vitað er um. Nokkrir hlutir virðast hafa glatast. Meðal þeirra muna sem ekki höfðu fengið hafa vísan stað voru málverk af Bjarna Pálssyni skólastjóra Iðnskólans og Eiríki Gíslasyni skólastóra sama skóla. Í haust voru rammar þessara málverka endurnýjaðir og greiddu Hollvarðarsamtökin fyrir þá vinnu en Elín bókavörður hélt utan um verkefnið. Málverkunum var fundinn veggur í Hamri , verknámshúsi. Einnig var glerlíkan af skólanum úr dánarbúi Hjartar Þórarinssonar unnin af Ingibjörgu Helgu Guðmundsdóttur komið fyrir á skrifstofu Soffíu skólameistara að hennar ósk. Örlygur leggur
einnig til að formleg skráning á munum skólans og gjöfum til hans þurfi að fara fram. Formaður tók að sér að ræða þetta við stjórnendur og kom hugmynd að starfsmenn skrifstofu taki það að sér í samvinnu við bókasafnsvörð. - Sú gleðifrétt barst nú á vordögum að lykill - sem notaður hefur verið á táknrænan hátt við skólastjóraskipti - hafi fundist í kjallara á bókasafni.
- Umræðu var haldið áfram um varðveislu mynda og myndbanda í skólastarfinu, brautskráningu og viðtölum við fyrri starfsmenn. Verkefnið í vinnslu og varpað yfir á Ut- teymi skólans. Helgi Hermanns unnið að því að klippa og færa í geymslubanka. Unnið að myndum á flakkara. Rætt um hvort mögulega mætti fá utanaðkomandi aðila til að vinna verkið. Máið í skoðun.
- Í haust verður fjölbrautarskólinn 45 ára. Hugmynd kom frá Örlygi að halda upp á afmælið t.d. með myndasýningu fyrir núverandi og fyrrverandi starfsmenn. Rætt við Sigurð Sigursveinsson og Þórarinn Guðnason sem eiga drög að myndasýningu. Kannski til efni á flakkara.
- Skipuð var afmælisnefnd - sem í eru Sigþrúður ,Sverrir og Þuríður. Afmælisnefnd ákveður hvað gert er. Hollvarðarsamtökin þurfa að vita í tíma fyrir haustið með hvað ákveðið verður. 13.september er afmæli skólans og verður haldið upp á það þá.
- Funda fyrir þann tíma.
- Ýmsar hugmyndir komu fram t.d. hjá Sigga hvernig þeir litu á skólann, taka viðtöl við eldri kennara. Hlaðvarpsþætti ofl. Merkilegar minningar t.d. Þórshátíð. Hugmynd Örlygs að myndasýningu 14.september ( afmælisnefnd). Samtökin hjálpa til peningalega. Sissa talar við Soffíu um fyrsta fund.
- Safna myndböndum á flakkara – spurning hvað er til (Eysteinn).
- Örlygur skrifar bréf til Soffíu hvernig myndefni er geymt. Sissu lofað að þetta yrði skráð.
- Tenging Ungmennafélags og Holvarðasamtaka
Næsta mál samtakanna :
-Hóa saman afmælisnefnd.
- Skanna umslög í skúffu hjá Ellu s.s kórferðir og myndir.
-Hver verður arftaki Örlygs ?
Fleira ekki rætt og fundi slitið kl.17.00
Selma Björk Jónsdóttir ritari







