Laus störf kennara fyrir haust 2020
Lausar stöður framhaldsskólakennara -
Fjölbrautaskóli Suðurlands
Fjölbrautaskóli Suðurlands auglýsir eftir framhaldsskólakennurum fyrir næsta skólaár.
Um er að ræða eftirfarandi kennslustöður:
- 2 x100% stöður í íslensku, önnur afleysing til eins árs
- 50% staða í spænsku
- 50% staða í íþróttum
- 100% staða í málmiðngreinum
Umsóknarfrestur er til og með 29. maí 2020. Ráðið verður í störfin frá 1. ágúst 2020.
Nemendur koma að mestu af upptökusvæði skólans sem er allt Suðurland. Áætlaður nemendafjöldi í skólanum eru um 850 nemendur.
Umsækjendur bóknáms þurfa að hafa fagmenntun- og kennsluréttindi á framhaldsskólastigi. Umsækjandi málmiðngreina þarf að hafa meistararéttindi í málmiðngreinum auk kennsluréttinda í framhaldsskóla.
Leitað er eftir skipulögðum einstaklingum með brennandi áhuga á skólastarfi og löngun til að vinna með ungu fólki. Umsækjandi þarf að hafa frumkvæði í starfi, vera skipulagður, vera fær í samskiptum og samvinnu og hafa góða fagþekkingu. Þekking á ólíkum kennsluaðferðum er mikilvæg í ljósi fjölbreytts nemendahóps. Kennslureynsla er æskileg. Um er að ræða fjölbreytt og lifandi störf. Góð tölvukunnátta er mikilvæg.
Umsóknir ásamt greinargerð um menntun og fyrri störf berist á tölvupóstfangið skolameistari@fsu.is . Ekki þarf að sækja um á sérstökum eyðublöðum. Mikilvægt er að tilgreina meðmælendur í umsókninni. Umsækjendur þurfa að senda inn sakavottorð.
Laun kennara eru samkvæmt gildandi kjarasamningi KÍ og fjármálaráðherra og stofnanasamningi skólans. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Olga Lísa Garðarsdóttir, skólameistari, skolameistari@fsu.is.
Frekari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.fsu.is
Skólameistari