AFRE2NÆ05

Titill Afrekshugsun - Næring íþróttafólks
Námsgrein Afrekshugsun
Viðfangsefni Næring íþróttafólks
Skammstöfun AFRE2NÆ05
Staða  
Þrep 2
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing

Megin viðfangsefni áfangans er næring íþróttafólks og mikilvægi réttrar næringar, m.a. hvað á að borða og hvenær á að borða, til að ná hámarksárangri í sinni grein.

Það er farið yfir ráðleggingar Landlæknisembættis varðandi rétt mataræði. Fjallað um hver orkuþörf okkar er miðað við líkamsbyggingu og daglega hreyfingu. Það er farið nokkuð ítarlega í orkuefnin kolvetni, fitu og prótein með þarfir íþróttafólks í huga. Skoðað er hlutverk og mikilvægi vítamína og steinefna í fæðunni og hversu mikilvægt er að vökvajafnvægi líkamans sé rétt. Fjallað verður um fæðubótarefni, hvaða næringarefni það eru sem verið er að sækjast eftir og hvenær er þörf á að borða fæðubótarefni eins og amínó sýrur og kreatín. Einnig eru fæðubótarefni skoðuð með hliðsjón af ólöglegri lyfjanotkun. Farið er yfir hvað er átröskun og hvernig átraskanir koma fram í íþróttum.

Forkröfur Engar
Þekkingarviðmið Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • Hvað fellst í því að velja rétt mataræði með tilliti til næringarinnihalds.
  • Hver orkuþörf okkar er yfir daginn með hliðsjón af æfingarálagi og hvernig hægt er að mæta henni á sem bestan hátt.
  • Hvað er fæðubótarefni og hvenær er þörf á að neita fæðubótarefna.
  • Hvað er átröskun, hvernig kemur átröskun fram í heimi íþróttanna og hvað ber að varast.
Leikniviðmið Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • Að skoða og meta mataræði sitt þannig að hann geti gert jákvæðar úrbætur.
  • Að skoða og meta næringarinnihald matvæla þannig að hann geti valið réttasta kostinn.
  • Að skoða og meta matarframboð í hans nánasta umhverfi þannig að hann geti valið réttasta kostinn.
Hæfniviðmið Að þessum áfanga loknum skal nemandi geta nýtt sér þekkingu sína til að velja rétt mataræði og stuðla þannig að betri heilsu og líðan, ásamt því að ná sem bestum árangri í sinni íþrótt. Hann skal hafa þekkingu til að geta metið hvað sé honum fyrir bestu hvað varðar mataræði og velja úr því fæðuframboði sem er á boðstólnum með gagnrýnum huga.
Námsmat Símat. Verkefnavinna og tímapróf jafnt yfir önnina. Ekki lokapróf.
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd