MYNDLISTANEMAR SÝNA Í LISTAGJÁNNI

Myndlistarnemar FSu halda áfram uppteknum hætti að setja upp sýningu í opinberu rými utan skólans. Nú er það nemendur í framhaldsáfanganum Straumar og stefnur sem fá þjálfun í uppsetningu og kynningu á eigin verkum. Verkin voru unnin á haustönn 2022. Sýningin fer fram í Listagjánni á Bókasafni Árborgar og stendur yfir dagana 2. - 28. febrúar. Gestum gefst tækifæri á að upplifa fjölbreytt listaverk, bæði að útliti og innihaldi. Í áfanganum  er unnið út frá kenningum í fagurfræði, fjölbreyttum myndgerðum og nemendur hlaða verk sín tilgangi sem tengjast ýmist goðsögnum eða heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

FSu státar af fjölbreyttum áföngum á sviði sköpunar. Þar má nefna stafræna smiðju, Fablab, ljósvakamiðlun, leiklist, textíl hönnun, grafíska hönnun, grafíska miðlun ásamt myndlistinni. Áfangarnir eru opnir öllum nemendum skólans, óháð námsbrautum. Einnig má nefna að það er alltaf gefandi og gaman að fá eldra fólk með áhuga á skapandi greinum inn í hinn hefðbundna nemendahóp. Veggjalistin er sýning sem alltaf er opin áhorfendum en um er að ræða vegg er vísar að bílastæði FSu og er tæplega 100 metra langur. Útkoman er frábær útimyndlistarsýning.

Auk þessa er gaman að segja frá því að fyrrum nemandi skólans á listalínu, Þóranna Ýr Guðgeirsdóttir hefur unnið að veggjalist víðs vegar um Selfoss. Það er stefna myndlistarkennaranna að miðla verkum nemenda sem víðast og til þess er notuð vefsíða á Facebook sem heitir FSu myndlist, nýsköpun og miðlun. Þar má sjá úrval verka úr þeim áföngum sem kenndir eru í skólanum.

Frábærir myndlistarkennarar FSu eru Anna Kristín Valdimarsdóttir, Ágústa Ragnarsdóttir og Elísabet Helga Harðardóttir.

ehh / ár / akv / jöz