Rafrænar töflubreytingar á haustönn 2023

Nemendur sem þurfa nauðsynlega að láta breyta stundatöflum sínum þurfa nú að óska eftir töflubreytingu rafrænt í Innu, fimmtudaginn 17. ágúst milli klukkan 10:00 og 13:00. Nemendur sjá samdægurs hvort tafla þeirra hafi breyst samkvæmt ósk eða ekki. Hafi taflan ekki breyst hefur ekki verið unnt að gera breytinguna. Ástæða þess er oftast sú að hópar eru orðnir fullir.

Athugið að töflubreytingar eru aðeins samþykktar ef um nauðsynlegar breytingar er að ræða.

Ekki er hægt að fá töflubreytingu eingöngu til að skipta um hópa.

Útskriftarnemendur:
Nemendur sem hyggjast útskrifast í haust eru hvattir til að fara vel yfir námsferilinn sinn. Sé þörf á töflubreytingum eru þeir beðnir um að nota rafrænu töflubreytingarnar. Útskriftarnemendur geta sent póst á áfangastjóra með efnislínu: "útskrift haust 23".

Námsráðgjafar verða með opnar stofur föstudaginn 18. ágúst til þess að aðstoða þá nemendur sem lenda i vandræðum með rafrænu töflubreytingarnar. Þeir verða í stofum 309 og 311 frá klukkan 8:30 til 12:00

(athugið þarf ekki að panta tíma, bara mæta):

 

Smellið hér til að nálgast leiðbeiningar vegna rafrænna töflubreytinga

Stokkatafla-Eyktarskipan

Áfangar í stokkum