Lágmarksárangur í námi

Eftirfarandi tekur til nemenda í dagskóla: 

a) Ef fall í einum áfanga kemur í veg fyrir að nemandi geti brautskráðst skal honum leyft að endurtaka próf í þeim áfanga í lok sömu annar.

b) Til að standast próf í áfanga má einkunn ekki vera lægri en 5. Heimilt er þó að brautskrá nemanda með einkunnina 4 í einum áfanga, ef um lokaáfanga eða stakan áfanga er að ræða, en ekki fást einingar fyrir þann áfanga. Nemandi sem nýtir sér þetta ákvæði verður að eiga einingar í staðinn fyrir þær sem tapast.

c) Stjórnendur geta veitt undanþágu frá ofantöldum ákvæðum.

Síðast uppfært 25. október 2017