Ráðgjöf

Náms- og starfsráðgjafar leiðbeina um allt sem viðkemur námi, náms- og starfsvali og persónulegum málum.   Áfangastjóri sér um skipulag á áföngum og býr til stundatöflu, auk þess sem hann hjálpar nemendum með val.  Áfangastjóri er nemendum til leiðbeiningar um námsferilinn í gegnum námið, hvaða áfanga þarf að taka og í hvaða röð.  
Tölvuþjónustan aðstoðar við flest sem tengist tölvukerfinu og getur hjálpað við að tengja tölvur við netkerfi skólans auk þess að hjálpa til við smávægileg vandamál sem geta komið upp í tölvum starfsfólks og nemenda.   
Skrifstofan aðstoðar síðan nemendur við margvísleg vandamál sem geta komið upp í lífi og starfi.  

Síðast uppfært 06. október 2016