FSu áfram í Gettu betur

Lið FSu vann góðan sigur á MA á miðvikudagskvöldið, 22:19. Okkar menn höfðu eins stigs forystu eftir hraðaspurningarnar, 16:15. MA náði að jafna en lið FSu seig framúr á lokasprettinum. Þar með eru þeir Kári, Ólafur Ingvi og Stefán komnir í 8 liða úrslit sem fram fara í sjónvarpinu, en þeim árangri hefur lið skólans náð annað hvert ár að undanförnu. Þess má einnig geta að fyrr um daginn sigruðu drengirnir lið kennara sinna með sömu stigatölu og MA-ingana.