Ferð á heimsmeistaramót í blómaskreytingum

Nemendur blómaskreytingabrautar ásamt kennurum fóru á heimsmeistarakeppni í blómaskreytingum í Manchester á dögunum. Heimsmeistaramót Interflora er stærsti alþjóðlegi viðburður í heimi blómaskreytinga. Mótið hefur verið haldið á nokkurra ára fresti víðs vegar um heiminn allt frá árinu 1972.  Fulltrúar frá 20 löndum unnu fjölmörg verkefni í 3 daga til þess að skera úr um hver væri sigurvegari. Úrslitakeppnin fór fram fyrir framan 600 áhorfendur og var gríðarlega spennandi. Þessi ferð var mikil upplifun fyrir bæði verðandi og starfandi blómaskreyta. Stefnan er tekin á þáttöku Íslands í næstu keppni. Nánari upplýsingar um heimsmeistaramótið má finna hér: World Cup 2023