SÁLF2IN05

Námsgrein

Sálfræði

Viðfangsefni Almenn kynning á sálfræði sem fræðigrein
Skammstöfun SÁLF2IN05
Þrep 2
Einingafjöldi 5
Lýsing

Áfanginn inniheldur kynningu á sögu og uppruna sálfræðinnar ásamt umfjöllun um helstu stefnur og viðfangsefni hennar. Nemendur kynnast mikilvægustu grunnhugtökum greinarinnar.

Forkröfur Áfangi á fyrsta þrepi í félagsgreinum, íslensku eða ensku.
Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • þróun sálfræði og tengslum við aðrar fræðigreinar
  • grundvallarhugmyndum sem móta kenningar í sálfræði
  • leiðum sálfræði til að útskýra hugsun, hegðun og tilfinningar einstaklinga
  • helstu tegundum náms og algengustu námsörðugleikum
  • helstu rannsóknaraðferðum í sálfræði
  • hagnýtu gildi sálfræðinnar
Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skilja umfjöllun um helstu hugmyndir sem mótað hafa sálfræðina
  • beita algengustu hugtökum sálfræðinnar á skilmerkilegan hátt
  • skoða eigin hegðun og annarra út frá grundvallarhugmyndum sálfræðinnar
  • skoða eigin hugsun og tilfinningar út frá grundvallarhugmyndum sálfræðinnar
  • tjá þekkingu sína munnlega og skriflega
Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt sér þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • gera sér grein fyrir mótunaráhrifum umhverfis
  • gera sér grein fyrir samspili hugsunar, tilfinninga og hegðunar
  • tjá sig skipulega um einstaka efnisþætti á gagnrýninn hátt
  • afla sér upplýsinga, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér
  • geta gert einfalda rannsókn, skilið niðurstöður og sett skilmerkilega fram
Námsmat

Námsmat byggir á símati, en um er að ræða kaflapróf, verkefnavinnu og sérstakt námsverkefni.