MATR1VA05

Titill

Verkleg og bókleg kennsla í matreiðslu

Námsgrein Matreiðsla
Viðfangsefni Verkleg og bókleg kennsla í matreiðslu
Skammstöfun MATR1VA05
Staða  
Þrep 1
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla MATR1VB05
Lýsing

Verklegt nám : Nemendur kynnast helstu matreiðsluaðferðum þar sem lögð áhersla er lögð á hollar og einfaldar uppskriftir.   Kynnast algengum hráefnum og vinna með þau frá grunni. Rétta meðferð matvæla, nýtni og frágang. Læra meðhöndlun helstu eldhúsáhalda. Nemendur læra að bera fram matinn, ganga frá eftir borðhald og frágangur á vinnuaðstöðu.

Nemendur öðlast skilning á persónulegu hreinlæti, læra að vinna með öðrum þar sem lögð er áhersla á samvinnu, tillitssemi og stundvísi. Í áfanganum eru lögð áhersla á að efla sjálfstæð og vönduð vinnubrögð nemenda.

Bóklegt nám: Nemendur kynnast helstu næringarefnum fæðunnar og hlutverkum þeirra. Meðferð matvæla með tilliti til heilbrygðis og matvælalöggjafar.

Forkröfur Engar
Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • einföldum matreiðsluaðferðum og bakstri
  • meðferð matvæla
  • fjölbreyttri matarmenningu þjóða
  • þeim áhöldum og tækjum sem notuð eru í greinunum og notkunarmöguleika þeirra
  • grunnþáttum í eldun einfaldra rétta eftir fyrir fram ákveðnu skipulagi
  • góðu hráefni og hagkvæmni í innkaupum
  • notkun uppskriftabóka og uppskrifta í matreiðslu
Leikniviðmið

Nemandi skal hafa aflað sér leikni í að :

  • nota einfaldar matreiðsluaðferðir
  • geta unnnið rétt eftir uppskrift
  • meðhöndlað hráefni eftir mismunandi aðferðum með tilliti til heilbrygðis
  • velja næringarík matvæli með tilliti til hollustu
  • umganganst tæi sem notuð eru í eldhúsi og kunna rétta notkun þeirra
  • leggja á borð fyrir máltíð, bera fram mat, gagna frá vinnuaðstöðu í elhúsi og borðstofu
  • að viðhafa persónulegt hreinlæti við matargerð
Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • matreiða helstu fæðutegundir á fjölbreyttan hátt
  • nýta sér næringarefni fæðunnar til vaxtar og viðhalds
  • nota algengustu eldhúsáhöld og tæki
  • meðferð matvæla með tillit til matarsjúkdóma
  • bera virðingu fyrir umhverfinu og því hráefni sem unið er með
  • sýna samvinnu tillitssemi og stundvísi
Námsmat Símat, verkefnavinna, ferilmappa, jafningamat
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd