ÍÞFR2SS05

 

Titill Íþróttasaga
Námsgrein Íþróttafræði
Viðfangsefni Íþróttasaga/Íþróttasálfræði
Skammstöfun ÍÞFR2SS05
Staða  
Þrep 2
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing Þessi áfangi skiptist í tvær spannir
  • Í fyrri hlutanum er farið yfir helstu atriði í íslenskri íþróttasögu frá landnámi til okkar tíma. Komið er inn á helstu þætti í erlendri íþróttasögu s.s. Ólympíuleika til forna og nútíma Ólympíuleika.  Komið er inn á áhrif fjölmiðla á þróun íþrótta, kynjamun og íþróttaiðkun, ásamt tengingu fjármagns og auglýsinga við íþróttir. Fjallað er um stefnur í íþróttum, s.s. afreksmannastefnu íþróttahreyfingarinnar og afreksmannasjóð. Vikið er að skipulagningu íþróttahreyfingarinnar og uppbyggingu hérlendis og hvernig við tengjumst heimssamtökunum.
  • Í seinni hlutanum er fjallað um helstu þætti íþróttasálarfræðinnar. Skoðuð eru ýmis áreiti sem hafa áhrif  á afreksgetu íþróttamanna. Fjallað er um spennu (streitu) og helstu spennuvalda, slökun og hugrækt af ýmsu tagi. Nemendur þjálfast í aðferðum til að auka sjálfstraust og sjálfsmynd íþróttamannsins í því skyni að bæta árangur. Fjallað er um muninn á einstaklings- og hópíþróttum og farið í áhrif félagslegra þátta á íþróttamanninn.
Forkröfur Engar
Þekkingarviðmið Nemandi skal hafa öðlast þekkingu á:
  • sögu íþrótta í heiminum til forna, allt frá grikkjum
  • sögu íþrótta á Íslandi fyrr og nú
  • helstu atriðum í sögu Ólympíuleika
  • skipulagi og uppbyggingu UMFÍ og ÍSÍ
  • aðferðum til að stilla spennustig íþróttamanna
  • mikilvægi hvatningar í íþróttum
  • einföldum aðferðum við einbeitingar- og hugarþjálfun
  • mikilvægi þess að efla sjálfsmynd og sjálfstraust íþróttamanna
Leikniviðmið Nemandi skal hafa öðlast leikni til að:
  • skilja samfélagslegt gildi íþrótta fyrr og nú
  • skilja gildi íþrótta sem söluvöru
  • meta áhrifamátt og tengsl fjölmiðla og fjármagns við íþróttir
  • vinna markvisst með sjálfsmynd og sjálfstraust íþróttamanna
  • nota hugarþjálfum af ýmsu tagi til að minnka spennustig íþróttamanna
  • skipuleggja keppnislíkar æfingar til að venja íþróttamenn við keppnisaðstæður
Hæfniviðmið Að þessum áfanga loknum á nemandi að geta
  • tekið þátt í umræðum um íþróttir í samfélaginu í víðum skilningi
  • minnkað eða aukið spennustig íþróttamanna í æfingu og í leik
  • hvatt iðkendur til dáða og fengið þá til að leggja sig fram í leik og starfi
Námsmat  
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd